
Ný vefsíða í loftið

Davíð og Golíat gera vefin Rauttnef.is fyrir Unicef
Davíð og Golíat gerðu vefin rauttnef.is fyrir Unicef á íslandi. Vefurinn er tileinkaður dag rauða nefsins sem fram fer 3 desember næstkomandi. Vefurinn er hannaður af Davíð og Golíat ásamt því að keyra á Aron veflausnum frá fyrirtækinu. Einnig er vefurinn hýstur á hýsingarkerfum DG.
Dagur rauða nefsins er söfnunarátak þar sem kímni er beytt til að vekja athygli á bágstöddum börnum í fátækari löndum. UNICEF hélt Dag rauða nefsins í fyrsta skipti á Íslandi árið 2006 og svo aftur árið 2009. Í 64 ár hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í 156 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára.




