- - Fljót og örugg þjónusta
- - Rukkað eftir föstum verðum fyrir helstu verkefni
- - 2.990 kr. fyrir yfirhalningu
- - Fagmannleg vinnubrögð
- - Viðskiptavinur fær að vita kostnað áður en farið er í viðgerðir
Tölvuverkstæði Davíð og Golíat annast viðgerðir fyrir fyrirtæki ásamt því að annast viðgerðir fyrir einstaklinga. Á verkstæðinu starfa sérfræðingar sem bæði hafa lokið iðnám í tæknitengdum greinum, háskólamenntaðir í tölvunarfræðum sem og ýmis sérnám tengd tölvuviðgerðum.
Viðgerðum lokið innan 3-5 daga að meðaltali.
Keppst er við að ljúka við hverja og eina tölvu sem kemur í viðgerð eins og hratt og unnt er og hefur meðaltíminn verið um 3-5 dagar frá því að tölvan kemur á verkstæðið. Hægt að kaupa sérstaka flýtimeðferð ef mikið liggur á.
Samningar við varahlutabirgja
Davíð og Golíat er með samninga við alla helstu varahlutabirgja á Íslandi ásamt því að vera með birgja erlendis. Með þessum samningum höfum við greiðan aðgang að þeim varahlutum sem þarf í tölvur frá öllum helstu framleiðendum sbr. IBM, DELL, Toshiba, Medion, Packard Bell, Acer, Sony Vaio og MAC.
Aukið gegnsæi og ráðgjöf
Þegar tölva kemur á verkstæðið fær viðskiptavinur úthlutað verknúmeri og fær staðfestingu í tölvupósti um að tölvan sé í viðgerð hjá verkstæðinu. Þegar vélin er skráð inn er farið yfir það með viðskiptavinum hver áætlaður kostnaður sé miðað við bilanalýsingu og haft er samband við viðskiptavin um leið ef séð er fram á að viðgerðin fari fram úr þeirri áætlun , þannig getur viðskiptavinur treyst að fá ekki bakreikninga. Einnig veita tæknimenn verkstæðis ráðgjöf um mögulegar minnisstækkanir og tölvukaup.
Sanngjörn rukkun
Eingöngu er rukkað fyrir þann tíma meðan tæknimaður verkstæðis er að vinna í tölvunni en ekki sá tími sem tölvan er á verkstæðisborðinu óhreyfð við uppfærslur o.s.frv. og því oftast rukkað eftir föstum einingum fyrir hluti eins og uppsetningu á stýrikerfi, gagnabjörgum o.s.frv.
Kynntu þér verðskrá tölvuverkstæðisins hér
Möguleikar:
- - Fá mann á staðinn
- - PC, MAC, Fartölvur, Borðtölvur & í sumum tilfellum annar tengdur raftækjabúnaður
- - Flýtimeðferð, tölva kláruð á sólahring


