Kostir:
- - Meiri sala í gegnum vefinn
- - Meiri aðsókn á vefinn
- - 70-80% af þeim sem leita á netinu eru að leita að vöru til að versla
- - Ódýr leið til markaðssetningar á fyrirtæki og vöru.
Leitarvélabestun (SEO - Search Engine Optimization) er það markaðstæki sem er það bæði ódýr og árangursrík leið til að koma vörum og þjónustu á framfæri.
Leitarvélabestun felst í því, að búa ákveðna vefsíðu þannig úr garði, að hún fái háa einkunn hjá leitarvélum og komi því ofarlega á leitarniðurstöðulista leitarvélar.
Leitarvélar leita reglulega í gegnum milljónir vefsíðna á ofur hraða og raða síðan leitarniðurstöðum í gagnagrunna sína eftir útreiknuðu mikilvægi og með tilliti til uppflettiorða. Það er mikilvægt að þær mæti engri fyrirstöðu á þeirri leið, þ.e. að vefsíður séu þannig úr garði gerðar að leitarvélar eigi auðvelt með að lesa þær. Að öðrum kosti er hætt við að þær sleppi hluta síðna og heimasíðan lendi neðar á listanum en ella.
Í stórum dráttum má skipta þeim atriðum sem hafa áhrif á niðurstöður leitarvéla í fjóra hluta:
1. Val á leitarorðum
2. Bygging og forritun vefsíðu.
3. Efni vefsíðu.
4. Tengsl vefsíðunnar við aðrar vefsíður.
Þróun á allra síðustu tímum hefur verið í þá átt að vægi 3. hlutans, þ.e. innihaldsins hefur vaxið, eftir því sem leitarvélar hafa orðið "greindari", en tengsl vefsíðunnar við aðrar vefsíður skipt minna máli, þótt þau séu enn mikilvæg.
Leitarvélabestun lýkur aldrei, því það þarf stöðuga eftirfylgni og mælingar á leitarvélavirkni vefsíðunnar ásamt því að styrkja síðuna með reglulegum uppfærslum. Leitarvélarnar breyta af og til leitarreglum sínum og því skiptir verulegu máli, að fyrirtæki láti fylgjast vel með framvindu mála, eða leiti aðstoðar til að gera það fyrir sig.
Möguleikar
- - Google Ad Words
- - Koma upplýsingum neðar sem eru óþægileg fyrir fyrirtæki/einstaklinga með því að búa til efni sem kemur ofar.


