Kostir
- Engin Aksturskostnaður
- Rukkað í 15 mín einingum
- Þægindi
Davíð & Golíat býður upp á fjarhjálp. Fjarhjálpin virkar þannig að viðskiptvinir setja upp forrit sem heitir Teamviewer inn á tölvuna sína og fá í kjölfarið ID og lykilorð sem þeir láta tæknimann D&G fá. Tæknimaðurinn tekur yfir skjáinn hjá viðskiptavini og getur lagað það sem er að í tölvunni í flestum tilvikum án þess að fá tölvurnar á verkstæðið. Þessi tækni er einnig notuð til að setja upp netföng hjá fólki, Eset vírusvörnina sem og Möppumiðlara Ifolder. Gríðarlega þægileg tækni til að leysa minnstu vandamál. Fyrirtæki sem gera heildarþjónustusamning við DG setja upp þetta kerfi á allar útstöðvar fyrirtækisins og halda tæknimenn DG utan um fyrifram skráða kóða og get þannig haft greiða leið inn á útstöðvar fyrirtækja.
Möguleikar
- Hægt að setja allar útstöðvar fyrirtækis upp þannig að hægt sé að leit aðstoðar hjá D&G þegar eitthvað bjátar á.
- Aðstoð við vefumsjónarkerfi í fjarhjálp
- Aðstoð við uppsetningu tölvupósts í fjarhjálp
- Aðstoð við uppsetningu ESET Vírusvarnakerfa í fjarhjálp
